Að axla ábyrgð

Þetta er í annað skiptið sem fréttamaður frá Stöð 2 axlar ábyrgð á ummælum sínum. Ég held að margir, og þá ekki síst stjórnmálamenn, geti lært af Láru. Þarna urðu henni á mistök sem í sjálfu sér kostuðu ekkert en þegar ferjusmíði fer úr böndum, eignir ríkisins eru seldar, sonur Davíðs ráðinn í djobb, ráðherrar blogga út og suður, utanríkisráðherra gleymir allri gagnrýni og fellur í sama drullupyttinn og hún gagnrýndi o.s.frv. þá er engin ástæða til aðgerða.

Lára, þú ert meiri manneskja.


mbl.is Hættir sem fréttamaður á Stöð 2
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldvin Mar Smárason

Siðblinda og mistök eru ekki sami hluturinn.

Hún var að tala um að fá fólk til að brjóta á lögreglunni (og eflaust lög líka), svo hún gæti búið til "betra" frétta efni.

Það er siðblinda en ekki mistök.

Þessi kona á ekki að heima í fréttum. Kannski í þáttagerð, en ekki sem fréttamaður.

Baldvin Mar Smárason, 25.4.2008 kl. 14:15

2 Smámynd: Jónas Yngvi Ásgrímsson

Þar sem ég er einn þeirra sem tek skýringar Láru trúanlegar þá tel ég að um mistök hafi verið að ræða. Siðblinda er hins vegar eitthvað sem gjarnan hrjáir valdsmenn þegar þeir hafa verið of lengi á jötunni. Þá taka þeir sig stundum til og byggja eigið húsnæði á reikning Þjóðleikhússins.

Jónas Yngvi Ásgrímsson, 25.4.2008 kl. 14:46

3 Smámynd: Loopman

Hvers konar bull vellur uppúr þessar manneskju. Eftir að hafa horft á Láru í kastljósinu og á stöð 2 núna áðan, þá er ég sannfærður um að hún sé of hrokafull til að taka ábyrgð.  Harkaleg orð, vissulega, en þegar manneskja setur sjálfa sig upp sem eitthvað fórnarlamb með tali sínu og fasi þá þykir mér það ekki fínn pappír. 

Hugsið ykkur að kalla þetta grín, og fréttastjóri stöðvar 2 tekur undir það líka. Þetta er ekkert grín, þetta er gamallt trikk fjölmiðlamanna til að fá þær fréttir og þær myndir sem þeir vilja fá. Málið er bara að láta ekki ná sér.

Hún var gripin í bólinu og það þýðir ekki að vera með fórnarlambsstæla og segja "ég er fimm barna móðir... bla bla bla" og "ég geri þetta ekki nema að vel íhugðu máli....". Það er alveg pottþétt að hún er komin með vinnu eða einhver loforð um slíkt. Fimm barna móðir segir ekki upp útaf smotteríi eins og þessu nema það sé eitthvað sem hún á sem backup. Ekki nema hún sé svo vel gift einhverjum manni sem er með milljónir á mánuði til að halda henni og krakkahernum uppi. Það er víst gott að búa í Mosfellsbænum.

Svo toppaði hún þetta með því að hikksta, hika og sýna öll merki óöryggis með sína sannfæringu þegar hún var að lýsa þessu gríni sínu bæði í kastljósinu og sérstaklega á stöð 2 kom hún illa út.

En að segja að þetta hafi verið "lélegur kaldhæðnishúmer sem almenningur skilur ekki". Það er HROKI og þess vegna kalla ég hana of hrokafulla til að taka almennilega ábyrgð.

Fréttastjóri stöðvar tvö átti að reka hana undir eins. Þannig hefði hann bjargað trúverðugleika stöðvarinnar.

Loopman, 25.4.2008 kl. 20:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jónas Yngvi Ásgrímsson
Jónas Yngvi Ásgrímsson

er framsóknarmaður búsettur í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og hefur skoðanir á málefnum sveitarinnar.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband