Gítarsmíði

Ég hef undanfarin kvöld aðeins dundað við að aðstoða mág minn við að smíða gítar. Þetta er náttúrulega vandasöm nákvæmnisvinna og bara skemmtilegt að dunda við. Jonni mágur hefur smíðað nokkra gítara um dagana og er núna að vinna í einum sem er afmælisgjöf til bróður hans.

Í dag var réttað í Reykjaréttum í tveggja stiga hita og slyddu. Undir kvöld var hins vegar komin snjókoma og krakkarnir gölluðu sig upp til að fara í snjókast. Veturinn kemur snemma í ár. Hins vegar höfðu bændur það á orði að snjókoma snemma að hausti kallaðist haustkálfur og þetta táknaði einfaldlega að við ættum von á góðu hausti.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú eignast þá kannski loksins almennilegan gítar til að glamra mátulega rykaður á í næsta réttarpartýi   

Villi Kristjáns (IP-tala skráð) 17.9.2007 kl. 21:21

2 Smámynd: Gunnar Kr.

Þegar Jónas hvítan hefur haus
og hann þá búinn ævistarfi að skila.
Þá vel ég trúi að verði fjandinn laus,
og vinurinn mun Lennon bara spila.

Gunnar Kr., 28.9.2007 kl. 01:56

3 Smámynd: Gunnar Kr.

Framsóknarmenn eru af furðulegu kyni
og frekar er erfitt þá að greina.
Þeir sækja nú fylgi, forystu og vini,
frekar til alvöru jólasveina.

Gunnar Kr., 28.9.2007 kl. 02:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jónas Yngvi Ásgrímsson
Jónas Yngvi Ásgrímsson

er framsóknarmaður búsettur í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og hefur skoðanir á málefnum sveitarinnar.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 380

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband