Höfundarréttur?????

Á tímum viðskipta með rafræna miðla þá verður sú spurning sífellt áleitnari hvernig farið verði með þessa miðla þegar fram í sækir. Ef við gefum okkur að ég kaupi lög eða "plötu" á rafrænan hátt, þ.e. með því að kaupa af netinu, og hlaði niður á harða diskinn á tölvunni minni. Í einhvern tíma þá get ég notið tónlistarinnar en svo kemur að því að einhver bilun verði og ekki verði hægt að bjarga þeim lögum sem ég hef keypt á þennan hátt. Í raun er ég búinn að greiða fyrir höfundarréttinn af þessum lögum og ætti því að geta sótt þau aftur án endurgjalds. Á sama hátt má gera ráð fyrir að ég eigi að geta skilað inn skemmdum geisladisk og fengið annan aftur og greitt einungis fyrir eitthvað lágt umsýslugjald.

Þetta á náttúrulega við um allt efni sem selt er á geisladiskum svo sem tónlist, bækur, leiki o.fl. þess háttar. Þeir einu sem hafa staðið sig í þessu eru hugbúnaðarframleiðendur en þar hefur verið hægt að fá hugbúnaðinn aftur án mikils aukakostnaðar ef frumdiskurinn skemmist.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jónas Yngvi Ásgrímsson
Jónas Yngvi Ásgrímsson

er framsóknarmaður búsettur í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og hefur skoðanir á málefnum sveitarinnar.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband